Norðurljósin bíða | Sértilboð frá KNOX

Fáðu 10% afslátt á öllum hótelum KNOX í norðurljósaferðinni. Notaðu kóðann AURORA við bókun og gistu á tímabilinu 1. nóvember til 20. desember 2026.

Græn norðurljós yfir torfþöktum smáhýsum Hótel Magma undir stjörnubjörtum himni

Á Magma byrja norðurljósin oft rétt fyrir utan dyrnar á smáhýsinu. Á heiðskírum vetrarkvöldum er gott að stíga út í myrkrið í sveitinni, horfa upp og leyfa himninum að ráða ferðinni.


10% afsláttur á öllum KNOX hótelum

Fáðu 10% afslátt af gistingu á Magma og öllum öðrum KNOX hótelum með kóðanum AURORA. Bæði bókunin og allar gistinætur þurfa að vera á tímabilinu 1. nóvember til 20. desember 2026.

Viltu skipuleggja dvölina? Veldu KNOX hótel, veldu dagsetningar og sláðu inn kóðann AURORA við bókun.


Hvenær á að horfa upp

Norðurljósatímabilið stendur frá lokum ágúst fram í miðjan apríl. Dimmastur er himinninn frá september til mars.

Heiðskír og dimmur himinn gefur bestu líkurnar á að sjá norðurljósin, en þau eru aldrei gefin.

Að lesa í himininn

Áður en þú ferð út skaltu kíkja á norðurljósaspá Veðurstofunnar og athuga skýjahulu og virkni.

Því dimmara sem tunglið er, því betur njóta dauf norðurljós sín, svo nýtt tungl eða mjór máni er kjörinn.


Norðurljósin á Magma

Í sveitinni við Magma er lítil ljósmengun, svo á heiðskírri nóttu sér himinninn um sýninguna.

Biddu um norðurljósavakningu við innritun og við látum þig vita ef himinninn lifnar við.


Ef þig langar að fara aðeins lengra

Til tilbreytingar er vert að keyra stutt að nokkrum dimmum stöðum í nágrenninu. Kynntu þér færð og veður, leggðu á merktum bílastæðum og haltu þig á merktum stígum, sérstaklega eftir að dimmir.

Fjaðrárgljúfur. Tilkomumikil gljúfurbrún og opinn, dimmur himinn.

Kirkjugólf, stuðlabergsflöt rétt sunnan við Kirkjubæjarklaustur með stórkostlegt útsýni upp í himininn.

Eldhraun. Mosavaxin breiða með óhindrað útsýni til himins í allar áttir.

Dverghamrar, stuðlabergsmyndanir með opnu útsýni til norðurs.


Nokkur góð ráð

Klæddu þig hlýrra en þú heldur, gefðu augunum tíma til að venjast myrkrinu og leggðu símann frá þér. Fyrir myndatöku er best að hafa stöðugt undirlag, nokkurra sekúndna lýsingu og ekkert flass.

Norðurljósin koma þegar þeim sýnist. Með góða spá, dimman himin og hlýtt rúm í seilingarfjarlægð er auðvelt að bíða eftir þeim á Magma.