Vönduð hjónarúm eða tvö einbreið rúm
Tveggja manna herbergin okkar, með hjónarúmi eða tveimur stökum rúmum, eru úthugsuð í nútímalegum norrænum stíl og eru hinn fullkomni griðastaður. Herbergin eru 27 fermetrar, vel búin, með sveigjanlegri rúmaskipan og rennihurð sem opnast út á þitt eigið útisvæði með stórbrotnu útsýni. Slakaðu á með háhraðaneti, 49” flatskjá með Netflix og vönduðum snyrtivörum frá Sóley Organics. Til að fullkomna dvölina er ljúffengt morgunverðarhlaðborð innifalið svo dagurinn byrji vel.